|
|
09.10.2006 12:48:55 / karenh
»
11.08.2006 10:09:53 / karenh
Hvað segiði
svo, ekki allir með spænskuna á hreinu ? Hún rifjaðist í það
minnsta ágætlega upp fyrir mér í þessar 2 vikur sem við vorum
úti núna, ótrúlegar fyndnir spánverjarnir að vilja ekki
tala ensku! Ég nenni nú samt ómögulega að skrifa alla
ferðasöguna hérna inn, þeir sem vilja geta lesið hana hjá Emilíu
á www.miamin.barnaland.is
Ég kem bara með nokkrar myndir og hápunkta ferðarinnar, sem
voru:
-
Ferðin til Marokkó, þar sem ég fór á bak á úlfalda!
-
Að sjá Bryngeir vinna danskeppni – eitthvað sem ég hélt að ég myndi
aldrei sjá!
-
Ferðin til Gíbraltar, hrikalega krúttlegt að klappa litlu öpunum og
gefa þeim nammi

-
Þegar ég lét Bryngeir og Gísla plata mig í tæki sem þeir sögðu að
væri töfrateppið! Þar hélt ég að mín síðasta stund væri runnin
upp!
-
Að fara á ströndina í það miklum hita að maður sá varla neitt fyrir
hitamistri!
-
Mini-discoin sem hótelið var með fyrir krakkana.. þar lærði ég sko
að dansa hehe!
Þetta var bara
æðisleg ferð í alla staði, afríkuferðin er samt eflaust eitthvað
sem ég gleymi aldrei, þvílík upplifun!

Við Bryngeir fyrir framan höll í Tetuan - Marokkó

Ég á úlfaldanum!

Fátæki borgarhlutinn í Tetuan

Gíbraltar - þessi var bara svalur og náði sér í ís!

Við Emilía í sólbaði í barnalauginni á hótelinu

Ein af fjölskyldunni 
Núna síðustu vikur
er svo ýmislegt búið að vera í gangi, við erum búin að fara í 2
útilegur, spilakvöld með Húsó - stelpunum, spilakvöld með Inga,
Hulda, Jöru og Tryggva, Hvalaskoðun á Húsavík og eflaust eitthvað
fleira sem ég get ómögulega munað! Myndir á www.karenhelga.tk !

Ein af mér og
Paulie sem ég stal frá Sísí 
Svo fer nú bara að
líða að því að skólinn byrji aftur, ótrúlegt sem sumarið er búið að
vera fljótt að líða! Ég er skráð í 21 einingu í fjarnámi þessa
önnina, verð auðvitað að vinna í Húsasmiðjunni áfram og eitthvað á
Kaffi Ak….
Jæja þetta er fínt
í bili, sjáumst á Dalvík um helgina – ætla ekki allir á fiskidaginn
annars ? 
Karen Helga
»
17.07.2006 17:02:14 / karenh
Jæja, þá er víst komin tími að nýja færslu, hin orðin vel gömul
og nóg búið að gerast síðan ég skrifaði síðast! Við erum búin að
fara út í 2 vikur og koma heim aftur og vera hér í næstum 2 vikur
Það var auðvitað bara æði úti, en ég nenni ómögulega að skrifa
ferðasögu núna, er ekki með myndir eða neitt í þessari tölvu svo
hún kemur bara næst 
Við erum búin að vera ágætlega dugleg síðan við komum heim, þar sem
við versluðum frekar mikið úti af fötum og fataskáparnir okkar voru
troðnir fyrir fórum við í tiltekt, hreinsuðum út gömul föt af okkur
3 og hentum losuðum okkur við 2 ruslapoka!! Ótrúlegt hvað maður
heldur lengi í gamalt dót sem maður kemur aldrei til með að
nota.... Emilía tók mynd af mér og pabba sínum í tiltektinni
:

Svo dembi ég mér bara beint í vinnu á mánudaginn og finnst ég
vera búin að vera í vinnunni síðan þá! Ég er nú samt búin að
"afreka" ýmislegt, t.d:
- Fara í ljós með Snædísi og sjá hana brenna. Í venjulegum
ljósatíma NB!
- Sjá The break up - nokkuð góð.
- Þvoði 9 þvottavélar á 2 dögum! - pínu fullar ferðatöskurnar þegar
við komum heim
- Bimminn seldur
- Átti stysta stopp aldarinnar þegar ég stoppaði í útskriftaveislu
í heila mínútu!
- Fór í rafting á laugardaginn, þvílík snilld! Fór með vinnunni að
grilla á Lambeyri og fórum svo í rafting 9 um kvöldið! Team
Hamster fór alveg á kostum, fengum rosa "skemmtilegan" ástralskan
gæd sem var aðallega í því að hrinda okkur Snæu, útúr
bátnum og fram af klettum og svona Rosa skemmtileg ferð,
svona þangað til að ég lenti í soginu og hélt að ég kæmist ekkert
uppúr vatninu aftur, gleypti vel af Jökulsánni Myndir úr
ferðinni :

Ég frekar ánægð að vera á leiðinni í rafting!!

Engar smá gellur í göllunum!!
Svo eru restin af myndunum á www.karenhelga.tk
Kem með ferðasöguna fljótlega 
»
20.06.2006 22:46:20 / karenh
Góða kveldið,
ætli maður verði ekki að skella inn einu bloggi áður en við
förum út! Við Bryngeir erum bara á fullu að pakka núna, förum
suður beint eftir vinnu á morgun og út á fimmtudaginn!
Bara svona til að minna ykkur á það, þá verðum við hérna 

Vikan er annars
búin að vera góð… Ég var með stelpukvöld í síðustu viku, við
horfðum auðvitað á Desperate housewifes og borðuðum allar yfir
okkkur af hrikalega góðum mat Við Bryngeir hittum Inga og Huldu
svo á föstudagskvöldið, kíktum í bæinn á amor og kaffi ak og var
bara mjög fínt. Auðvitað pakkað í bænum af “utanbæjarliði” og
slagsmálin efitr því hehe.. Er þetta ekki annars reglan, að kenna
alltaf utanbæjarfólki um eitthvað vesen á Akureyri ? Anyways, þá
vaknaði ég svona líka fersk á laugardaginn til að fara að vinna í
Blómaval, vinnualkinn! Það var laaaangur dagur! Eftir vinnu leit ég
við í stúdentsveislunni hjá Pálu minni, til hamingju aftur yndið
mitt Svo renndum við Hulda útí Ólafsfjörð á bekkjarmótið
hjá köllunum okkar og það var bara hrikalega gaman! Góður matur,
snilldar skemmtiatriði og Bryngeir og Ingi fóru á kostum í
liðakeppnina, t.d. með “Litlu andarungarnir”, smokkum og
buxnaþjófnaði… þetta endaði allt saman 3 um nóttina í pottinum
heima hjá Tengdó Myndir af Bekkjarmótinu eru á www.karenhelga.tk , reyndar frekar fáar þar sem
vélin varð batteríislaus svo snemma um kvöldið Á sunnudaginn
fórum við svo í 2 útskriftarveislu, hjá Ólöfu frænku Bryngeirs og
henni Sunnu minni Síðustu 2 daga höfum við svo tekið í að pakka,
reyndi kíkti Helga aðeins á mig og Emilíu mína áðan og fékk mjög
góða skoðunarferð um herbergið hennar Emilíu hehe Fann eina
gamla og góða af okkur:

Verð svo að sýna
ykkur hvað ég á fallega frænku, þetta er Meyah Lív litla mín í
Svíþjóð 

Þvílíkur engill!
Alltof langt síðan ég hef hitt hana Svölu mína, ætli það verði
ekki bara heimsótt hana og fjölskylduna í Svíþjóð næsta sumar
Til hamingju ef
þið nenntuð að lesa þetta allt, endilega kvittið elskurnar! Kveðja
Karen Spánarfari!
»
10.06.2006 15:06:18 / karenh
En ætla samt að reyna að drita
nokkrum línum hérna inn....
Fyrsta mál á dagskrá,
nýjar myndir
www.karenhelga.tk 
Myndir síðan um hvítasunnuhelgina,
nóg að gerast þá og auðvitað myndir eftir
því!Við
fjölskyldan fórum í fermingarveislu hjá Viktori á
laugardeginum, alltaf gaman að hitta allt liðið Ég skellti
mér svo í bæinn um kvöldið með Pálu, enduðum á kaffi Ak og
vorum þar þangað til að það lokaði. Á sunnudeginum var svo
partý hjá Þóru, svaka stuð á skvísunum Svo var það
auðvitað Palli í Sjallanum, maður missir nú ekki af
honum!
Annars var vikan frekar róleg, náði
mér reyndar í einhverja ógeðis magapest, ekkert spes! Fór svo og
horfði á 1. leikinn hjá ÍANN á fimmtudaginn, alveg að missa mig á
hliðarlínunni Þeir unnu þetta nú kallarnir, glæsilegt hjá þeim
Við
Bryngeir fórum svo í gærkvöldi útá Hrísar þar sem ma &
pa voru með bústað en ekki að nota hann! Við fórum í heita pottinn
og Bryngeir var búin
að redda hvítvíni og jarðaberjum, þannig að þetta var ekkert smá
kósí 
En við erum svo að fara að renna út í
fjörð núna svo ég segi þetta bara gott í bili, bið að heilsa ykkur
elskurnar, hafið það gott í sólinni 
Karen hressa
»
22.05.2006 21:06:42 / karenh
Úff það er
orðið langt síðan síðast, eins og Snædís benti á á ég víst ekki
lengur eitt próf eftir heldur er ég búin En ég
nenni engan veginn að rekja það í smáatriðum fyrir ykkur hvað er
búið að vera í gangi, svo við punktum bara 
-
Stelpukvöld með Desperate housewifes og nóg af mat!
-
Sunnudagsrúntur með Helgu og Heiðrúnu
-
Mission Impossible í bíó, nokkuð góð
-
Vinna vinna vinna- alltaf stuð í Húsasmiðjunni
-
Júróvision party hjá Inga og Huldu, hellingur af mat þar líka

-
Hitti Sunnu mina í gott spjall…
-
Fullt af sundferðum og ísrúntum, enda stefndi allt í að það væri
komið sumar hérna hjá okkur!!
-
Helgarferð á Selfoss til Ástu minnar og Chris
-
Heimsókn í sveitina til Stínu
-
Ferð í fjörðinn góða…
-
Fékk loksins allar einkunnirnar mínar og er heví sátt

-
Er aftur á móti ekki sátt við veðrið, whadda er í gangi hérna ??!
Maður alveg búin að setja sig í sumargírinn en þá haglar bara á
mann!
Stefnan er víst
tekin á djamm núna á miðvikudaginn, voða sprell í vinnunni… Og svo
verð ég bara að fara í bíó á Da Vinci code, bókin var svo hrikalega
góð að mig virkilega hlakkar til að fara á þessa mynd… En jæja,
þetta hlýtur að vera nóg í bili, ætla að skella mér í sófann til
“gamla” kallsins míns 
Hafið það gott
elskurnar mínar 
»
08.05.2006 16:14:39 / karenh
Og búið að ganga vonum framar
Þessi próf eru samt búin að ganga fáránlega vel miðað við hvað
ég bjó mig undir, vissi alveg að það yrði ekki létt að vinna
samhliða fullum skóla og hélt að það myndi alveg sýna sig þegar
kæmi að prófum... en ég er allaveganna ekki fallin í neinu ennþá
Er ekkert smá ánægð með hvað kennararnir eru snöggir að
þessu, strax búin að fá 2 einkunnir!
Ég er semsagt að fara í síðasta
prófið mitt á morgun og hrikalega verður gott þegar þetta er búið!!
Er farin að hlakka svo geggjað til sumarsins og ekki beint létt að
sitja inni og lesa þegar það er svona gott veður eins og er búið að
vera um helgina... Enda stalst ég tvisvar í sund Er svo búin að
vera þvílíkt niðursokkin í dagdrauma hérna um sumarið, fara að fá
mér ís í góðu veðri, tjill í kjarna, sumarbústaðarferð, útilegur,
göngutúr í bæinn og bara að vera í fríi! 
Ég er komin þangað í
huganum......

Veriði svo dugleg að kommenta elskurnar 
Kv. Karen í sumarfíling
»
03.05.2006 14:49:15 / karenh
Jæja, ákvað að skella inn einni
færslu í tilefni að því að ég er byrjuð í prófum. Hver kannast
ekki við gleðina sem fylgir prófatíð, svefnleysi, stress, lítið
borðað að hrökkva upp um miðjar nætur og “ó mæ god ég gleymdi að
lesa um þetta!!”. Einstök gleði og ánægju yfir þessu hjá mér,
sérstaklega þar sem prófin hafa aldrei verið jafn þétt hjá mér!
Skilaði lokaverkerfni í próflausa áfanganum, Ens 503 á
mánudaginn, fór í 1. prófið í dag og er á hverjum degi fram á
miðvikudag í næstu viku! Prófið í dag gekk nú samt þónokkuð vel,
vissi ekki alveg við hverju var að búast... Sjáum samt til hvort
ég verði svona hress á morgun, þá erum við að tala um sögu 303,
menningar og hugmyndasaga sem ég tók víst í vali!! Wtf ??! En
æji, ég hugga mig við það að þetta er alveg að verða búið og ég
að komast í sumarfrí!! Bara frá skólanum reyndar, verð að vinna
alveg fram í júní en þá er það líka Costa del sol 
Annars held ég að það sé frekar lítið
að frétta, við Bryngeir héldum reyndar afmælisveislu fyrir
prinsessuna okkar síðustu helgi, litla snúlla orðin 3. ára Og
það komu btw ekki nema 40 manns svo það þurfti aðeins að baka og
græja heima! Þetta var samt rosalega gaman, hægt að sjá allt á
www.miamin.barnaland.is
!
Ég vildi bara kasta á ykkur smá
kveðju, læta líklegast ekki heyra aftur í mér fyrr en eftir próf.
Hafið það gott elskurnar mínar, og ég vona innilega ykkar vegna að
þið séuð ekki í prófum!!
Kv. Bókanördið
»
14.04.2006 12:40:16 / karenh
Loksins loksins loksins
kemur bloggið! Ég þurfti bara að kíkja á síðustu færslu til að
sjá hvað væri búið að gerast, orðið svolítið langt síðan það kom
eitthvað hérna inn! Ástæðan er nokkuð einföld, ég er að drukkna
úr verkefnum í skólanum og það eru NB ekki nema 3 vikur í próf!
Síðasti mánuður hefur farið í vinnu 8-6 og kvöldin (næturnar) í
að sitja fyrir framan tölvuna og hespa af þessi verkefni. Og þar
sem mér fannst frekar ólíklegt að nokkur nennti að lesa um
afdrif Lady Macbeth þá geymdi ég bara að skrifa hérna inn þangað
til það væri aðeins farið að hægjast um...
En já, við fórum suður í
endann á mars og það var auðvitað rosa fínt, vorum hjá Ásgeiri og
Öggu á nesinu í góðu yfirlæti Fórum í alveg slatta af
heimsóknum, út að borða, versluðum, fórum í húsdýragarðinn og
fleira skemmtilegt... Hittum Ástu og Chris og er stefnan tekin á
Selfoss til þeirra í maí Gísli litli bróðir átti afmæli um
síðustu helgi, gæjinn orðinn 15 ára, til hamingju með það Gilli
minn! Lillý var svo hjá okkur í gistingu og hún og Emilía voru
alveg frábærar saman 
Annars á ég rosalega erfitt
með að muna hvað er búið að vera í gangi hjá okkur, gullfiskaminnið
sjáiði til... En við fórum á Litlu Hryllingsbúðina í gærkvöldi ( ég
man það þó ) og þvílíka snilldin... Hafði líka séð uppfærsluna
með Þórunni Lár og vissi ekki alveg við hverju var að búast, en
þetta voru sko engin vonbrigði, alveg rosalega skemmtileg sýning
Svo styttist óðum í páskaeggjadaginn og ég auðvitað búin að tryggja
mér eitt stykki... Sem verður þó ekki borðað fyrr en á sunnudaginn,
þar sem það páskadagur!! Sumir hafa verið eitthvað að svindla og
opna páskaeggin sín, nefni engin nöfn en veit um einn sem er búin
að renna niður 6 stykkjum!! Planið er samt bara að liggja uppi í
sófa og hafa það gott þessa frídaga, helst að gera sem minnst
Samt alveg spurning um djammið á sunnudaginn, er það Í svörtum
fötum ? Síðasta ball með þeim hérna var bara snilld, svo það er
spurning um að skella sér 
Jæja ætla að segja þetta gott
í bili, farin upp í sófa að horfa á Sex & the city


Mía mín og ég við
Árbæjarlaugina

Bestu
mín :*
Gleðilega páska öll sömul 
Karen
Helga
»
20.03.2006 12:09:36 / karenh
Jæja þá er vikan búin svo ætli það
sé ekki komin tími á blogg 
Búið að vera nóg að gera as usual,
stór hluti af síðustu viku fór auðvitað í að læra enda kemur ekki
annað til greina þegar það er svona mikill skóli... Hitti hana
Sonju mína á þri og tókum gott spjall, allt of langt síðan við
höfðum hist! Ingi og Hulda komu svo í mat á mið í alveg geggjað
svín! Sem að Bryngeir eldaði, best að taka það fram Tókum svo
fimmtudaginn í að græja aðeins heima, margir smáhlutir sem hafa
setið á hakanum of lengi sem við vorum að
klára
Á laugardaginn var það svo
Ungfrú norðurland, auðvitað mætti familían að
styðja Pálu beibí! Vorum mætt niður í Sjalla rétt fyrir 8, vorum
með besta borðið í húsinu hehe Maturinn var bara góður, mér
fannst það allaveganna... held reyndar að Hulda hafi verið ósammála
mér þar sem ég borðaði líka forréttinn hennar.. Já, átvaglið ég!
Svo var bara keppnin sjálf, allt rosa flott; tískusýning,
bikiníatriði og kjólarnir.. Og auðvitað bar Pála mín af
Selma Ósk var krýnd Ungfrú norðurland og átti hún það fyllilega
skilið, ótrúlega glæsileg stelpa.. Hildur Hauks var í 2. sæti og
Lísbet í 3. sæti, til hamingju með það aftur Lísbet
Og svo bættu
dómararnir við 4. sætinu fyrir Paulie svo hún er á leiðinni í
ungfrú Ísland, verður gaman að fylgjast með því! Til hamingju Pála
mín, þú stóðst þig svo vel og ég er óendanlega stolt af þér! Við
vorum svo komin út úr Sjallanum um hálf 2 og þá var komið þetta
skítaveður, ekki alveg í samræmi við blíðuna sem hefur verið
undanfarið...! Sáum að allt var að vera vitlaust í bænum svo við
drifum okkur bara hjem að kúra
Vaknaði svo í gær með þetta góða kvef
(má etv. Rekja til þess að ég var berleggjuð á
laugardagskvöldið...), ógeðslega stífluð og með heddeik frá
helvíti! Og líðanin er ekkert mikið betri núna.. Spurning hvort ég
er að fá þessa alræmdu flensu.... Kemur í ljós! Mynd síðan á
laugardagskvöldið, tekin af sjallinn.is

Mínar myndir eru síðan
á www.karenhelga.tk - nenni ekki að reyna að setja þær
hérna inn þar sem það fer bara í e-ð rugl! Stefnan hjá litlu
fjölskyldunni minni er svo tekin suður núna á fimmtudag, aðeins að
skipta um umhverfi og gera e-ð skemmtilegt
Veriði nú
dugleg að kommenta beibís!
»
09.03.2006 10:33:25 / karenh
Hæhæ, þá er helgin að baki og næstum komin ný ! Tíminn er að
líða ekkert smá fljótur að líða þessa dagana, kannski
afþví að það er svo mikið að gera
Misjöfn síðasta helgi, eins og flestir á Akureyri vita núna þá var
banaslys á laugardagsmorgun, jafnaldri minn lést í bílslysi.. Hann
var alltof ungur, átti lífið framundan og ég held að það verði að
líta á svona slys sem víti til varnaðar: tökum ábyrgð í umferðinni!
Ég vil líka votta öllum aðstandendum og vinum Sesars alla mína
samúð... 
En til að slá á aðeins léttari strengi.. þá var Góugleði
Húsasmiðjunnar á laugardagskvöldið, fordrykkur + matur á
Vélsmiðjunni og ógleymanleg skemmtiatriði!! Baddi og Skúli í
eróbikki og Til hamingju Ísland í flutningi Sigmunds... gerist það
mikið betra ? Eftir hóflega drykkju á Vélsmiðjunni héldum við
áfram í bæinn og enduðum í Sjallanum á Í svörtum fötum, og ég hef
ekki skemmt mér svona vel á balli í langan tíma! Þeir voru bara
geggjað skemmtilegir + að það voru næstum allir þarna Vð komumst
svo heim eitthvað um 5, það er svona þegar Bryngeir drekkur ekki þá
lendir hann/við oft í að keyra ööörfáum heim Sunnudagurinn fór
svo mestu leyti í hangs, kláraði reyndar nokkur verkefni úr
skólanum þar sem þau voru farin að hrannast upp Vikan er búin að
vera ekkert smá fljót að líða, ég fór í sund með dúlluna mína á
þriðjudaginn þar sem Bryngeir er alltaf að vinna til 10 á
þriðjudögum þá höfðum við það bara kósí saman Fékk samt panikk
móment á þriðjudagskvöldið; Emilía var sofnuð og ég frammi að læra,
ætli það hafi ekki verið eitthvað um 9 leytið... Heyrði alltí einu
eins og eitthvað hefði dottið og smá þrusk, en hélt að þetta væri
bara á efri hæðinni.. Samt pínu skrýtin tilfinning yfir mér,
þegar
allt í einu kemur aftan að mér feitasti köttur sem ég hef séð! Þá
hafði kattarkvikindið stokkið inn um eldhúsgluggann og var bara á
vappi um íbúðina ég var ekki sátt...
Ennnn, svo er árshátíð Símans næstu helgi og kallinn ætlar víst að
bjóða mér með.. góður, hah Fljúgum suður á lau og heim aftur í
hádeginu á sun.. Svo er stefnan tekin á Kardimommubæinn í Freyvangi
á sunnudeginu, fara að sjá Sörensen rakara
Nokkrar myndir af helginni....

Ég, Snædís og Sandra á barnum....

Siddi og Birkir

Sandra og Öddi að fara á kostum... appelsínuleikurinn
Svo eru allar myndirnar á www.karenhelga.tk !
»
02.03.2006 09:07:19 / karenh
Góðan
daginn allt morgunhressa fólk.. Ég veit að ég er lélegur
bloggari, en ég er hætt að afsaka það! Ég blogga bara þegar
ég blogga Aðalástæðan fyrir bloggleysi er að ég er svo
hrikalega andlaus, nokkrum sinnum búin að setjast fyrir
framan tölvuna, en bara allt tómt
Ég er samt búin
að finna afmælisgjöfina til Bryngeirs sem er kannski ágætt þar sem
hann átti afmæli síðasta laugardag Fór með Emilíu í bæinn og hún
valdi gjöfina til pabba síns alveg sjálf! Valdi bílabrók, bindi og
fór svo í Ice in a bucket og keypti fjólubláan loðramma og tók það
skýrt fram að það ætti að vera mynd af sér í honum, bara sætust
Áttum alveg rosalega góðan dag bara afslöppun með fjölskyldunni og
út að borða um kvöldið, rosalega þægilegt að gera Ekki Neitt Svo
er djamm um helgina, 1. skipti á þessu ári!! Sé ykkur hress Ætla
að segja þetta gott læt fylgja smá upplýsingar um mig 
Ég
hef:
(x) reykt
sígarettu – Á maður ekki að vera hreinskilin ?
( ) klesst bíl vinar/vinkonu – Heh nei, bara foreldra minna...
( ) stolið bíl (foreldranna)– Ég vissi
alveg að ég mátti fá hann
(x) verið ástfangin
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum – Hversu margir giskuðu á að ég hefði slegist
oftar en einu sinni?
(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum – Gerðu það
ekki allir.. var allaveganna vinsælt á Húsó 
( ) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n – Nei, góða stelpan!!
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
(x) horft á einhvern deyja – Á sjúkrahúsi úti á Spáni.. vona ða ég
veikist aldrei þar!
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi – Whaaaat ?
(x) borðað sushi – Fyrir tilstuðlan Japanska herbergisfélagans
míns... aldrei aftur!!
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði (sem sagt í snjó) – Maður var nú ansi góður á
yngri árum
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu – Nei... er ekki
orðin svo tæknivædd!
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf – Heh, held ég hafi innbyrt
meira af verkjalyfjum á 2 vikum eftir hálskirtlatökuna heldur en á
allri ævi minni!
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka – bara gaman...
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up) – Uppáhaldleikurinn okkar Pálu í
gammel daga
( ) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik – Leik, spilum... allt til að vinna
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum – Hmm hljómar ekki vel að segja
þetta, en ég dottaði einu sinni á Hótel Norðurlandi, það var ekki
hræða í húsinu!
(x) notað falsað skilríki - Hahaha
(x) horft á sólarlagið
( ) fundið jarðskjálfta – Finn aldrei fyrir þessu!
( ) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður – Allt of oft, mig kitlar svo hrikalega
að ég get ekkert gert...
( ) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
() verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í bílslysi – 2 á einni viku....
( ) verið með spangir/góm
( ) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir
vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi - jakk
(x) fengið deja vu
(x) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
(x) verið vitni að glæp – hehehe ójá!
( ) fundist eins og það sé logið að þér á hverjum einasta degi!
(x) verið svikin
( ) efast um að hjartað segði þér rétt til – Ég treysti mínu hjarta

( ) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið -
þessum gulu) – Why ?
( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur – ætlaði að stytta mér leið gegnum úthverfi í
Barcelona til að komast í skólann... mesti panikk klukkutími ævi
minnar! (x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja – Botnlangabólga...
( ) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum – Vax og tré meira að segja, Emilíu
finnst ekki leiðinlegt að lita

( ) sungið í karaókí – Aldrei skal ég gera það
( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera
ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér - ojjj
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
( ) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
( ) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n
í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir
þig
Veriði nú dugleg að kvitta svo
ég nenni þessu 
Adíos
pípol
»
18.02.2006 09:36:51 / karenh
Dauði og djöfull! Alveg er þetta týpískt,
1. laugardagurinn í ég veit ekki hvað langan tíma sem ég MÁ
og GET sofið út en nei! Ég er búin að liggja inni í rúmi í
klukkutíma að bylta mér og reyna að sofna aftur, bara get
ekki sofið! Þetta er sko agalega pirrandi.. Sérstaklega þar
sem hinn helmingurinn vaknar líklegast ekki fyrr en um 2, og
þá þarf að draga hann framúr! Oh well, þá geri ég bara
eitthvað uppbyggilegt í staðinn, nóg er allaveganna að
læra...!
Ingi og Hulda komu í Idol og Domino´s í gærkvöldi og ég var sátt
við manneskjuna sem fór í 1. skipti í langan tíma, hef aldrei fílað
þessa Elfu! Reyndar finnst mér finnst mér frekar sorglegt að
Eiríkur sé ennþá með í þessari keppni, miðað við þá sem hafa verið
sendir heim! En það sýnir okkur hve margir búa á austurlandi
Annars er aðeins betra sjónvarpsefni núna á eftir, Manchester -
Liverpool.. við ætlum ekki að tapa þessu!! Kem með yfirlýsingar
eftir leikinn 
Ég bíð samt spennt eftir morgundeginum... þessi dagur gleymdist
hjá sumum í fyrra, þannig að þessi dagur hefur aldrei verið neitt
spes hjá mér! En aldrei að vita, sjáum til eftir morgundaginn!
En jæja, ég ætla að fara að læra, læt ykkur vita hvernig þetta
verður 
P.s. Hvað gefur maður kærastanum sínum í 22 ára
afmælisgjöf...?
»
13.02.2006 13:47:50 / karenh
Jæja það er víst
búið að klukka mig á fleiri en einu bloggi, svo að hér kemur
það:
4 störf sem
ég hef unnið um ævina:
1. Leiðbeinandi á Bestabæ – leikskólinn á Húsavík 2
sumur
2. Gæd á
Minjasafninu á Ak
3. Lobbíisti á Hótel
Kea
4. Ritari á
lögmannstofu – sumardjobb auðvitað
4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og
aftur:
1. The Devil´s
advocate
2. Lion King &
Aladin – tónlistin frá Disney er best… og
húmorinn!!
3. Dirty
dancing
4. Forrest
Gump
4 bækur sem ég les
oft:
1. Þar sem
Djöflaeyjan rís
2. Bækurnar um Harry
Potter
3. Bylting
Bítlanna
4. Svo getur maður
alltof dottið inní bækurnar hans Arnalds Indriða!
4 staðir sem ég hef búið
á:
1. Reykjavík
2. Kaupmannahöfn, meðan pabbi var að læra..
3. Akureyri (Nokkrir staðir þar, en er
núna komin á stað sem ég ætla að vera á J)
4. Húsavík (NB að á 6 árum á Húsavík bjó ég ekki í nema 5
húsum…)
4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:
1. Sex & the city
2. Friends
3. E.R.
4. House
4 síður sem ég skoða daglega fyrir utan
blogg:
1. Heimabankinn – ég er alltaf að bíða eftir að einhver leggi inn á
mig millur 
2. Síðan hjá Míu litlu mús )
3. Mbl.is – maður verður víst að fylgjast með fréttum!
4. Radioblogclub – tónlist er alltaf góð!
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Rimini á Ítalíu
2. Marmaris, Tyrkland
3. Barcelona
4. Feneyjar
4 matarkyns sem ég held uppá:
1. Humarsúpa a la pabbi
2. Fajitas
3. Sveppasteik á Greifanum
4. Kjúklingaréttinn minn
4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
1. Heima að kúra með ástinni minni.. það er svo gott!
2. Vera komin til Spánar, hiti…
3. Í Reykjavík, alltof mikið af fólki þar sem ég hef ekki hitt
lengi!
4. Heima að læra (samviskan að segja til sín )
4 bloggarar sem ég klukka:
Paula
frænka
Helga
Hrönn
Anna
Mín
Heiðdís í
UK
Koma svo fólk!

»
06.02.2006 09:21:34 / karenh
Þá er það komið
á hreint, Costa Del Sol here I come Ójá, í júní verð ég
flatmagandi á sólarströnd með Bryngeir og Emilíu J
Förum á alveg agalega flott hótel, sem á víst að vera barnvænt
líka Tívolí, ströndin, vatnsleikjagarður, MolliN og svo er
toppurinn auðvitað ferð til Afríku… ég er alveg sokkin niður í
dagdraumana hérna!

Já mig er sko
farið að hlakka til…..

Þessi tilhugsun
heldur allaveganna á manni hita í þessum skítakulda!!
J
Adios
»
Síður: 1 2 3
|
|